DASSS AF KRYDDI Í TILVERUNA
29. mars 2023
 Nýr samningur við Knattspyrnudeild Reynis

Við hjá Réttinum höfum framlengt samstarfssamningi okkar við Knattspyrnudeild Reynis í Sandgerði. Andri Þór Ólafsson formaður deildarinnar leit við hjá okkur á dögunum þar sem lagt var á ráðin fyrir sumarið.
Boltasumarið er handan við hornið þar sem Reynismenn taka slaginn í 3. deild en Íslandsmótið hjá þeim hefst þann 6. maí á Blue-vellinum í Sandgerði.
Gangi ykkur vel í baráttunni í sumar. Áfram íþróttir!
Kryddaðu tilveru vina þinna
Fleiri fréttir

Nýverið framlengdum við samstarfinu okkar við Körfuknattleiksdeild Keflavíkur. Magnús Sverrir Þorsteinsson formaður deildarinnar leit við á Réttinum þar sem við stimpluðum áframhaldandi samstarf á blað.                                    Við hjá Réttinum erum stolt af því að leggja íþróttahreyfingunni á Reykjanesi lið og óskum Keflvíkingum góðs gengis á komandi vertíð í Bónusdeildum karla og kvenna.                                    Áfram íþróttir
 

Rétturinn og Njarðvík framlengja samstarfinu                                                                                     Nýverið framlengdum við samstarfinu okkar við Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur. Einar Jónsson formaður deildarinnar leit við hjá okkur á Réttinum þar sem nýtt samstarf var hamrað á blað.                                                                                     Við hjá Réttinum erum stolt af því að vinna með íþróttasamfélaginu á Suðurnesjum og óskum Njarðvíkingum góðs gengis á komandi tímabili í Bónusdeildunum.                                                                                     Áfram íþróttir
 
